Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2008


  • Hagtíðindi
  • 14. janúar 2009
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fjórða ársfjórðungi 2008 voru 182.400 á vinnumarkaði. Af þeim voru 175.000 starfandi en 7.400 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81,5% en atvinnuleysi var 4%. Atvinnulausum fjölgaði um 3.900 frá fjórða ársfjórðungi 2007 en starfandi fækkaði um 1.300. Alls fjölgaði um 2.600 manns á vinnumarkaði á sama tíma. Meðalfjöldi vinnustunda var 39,3 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi en 21,7 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Til baka