Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2010


  • Hagtíðindi
  • 21. apríl 2010
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fyrsta ársfjórðungi 2010 voru 177.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 163.900 starfandi en 13.600 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 79,7% en atvinnuleysi var 7,6%. Atvinnulausum fjölgaði um 900 frá fyrsta ársfjórðungi 2009 og starfandi fækkaði um 1.600. Atvinnuleysi var 8,6% á höfuðborgar­svæðinu en 5,9% utan þess.

Til baka