Landsframleiðslan 2011 - endurskoðun


  • Hagtíðindi
  • 07. september 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 2,6% samkvæmt endurskoðuðum þjóðhagsreikningatölum Hagstofunnar fyrir árið 2011. Þessi vöxtur kemur í kjölfar mikils samdráttar tvö ár þar á undan, 4% árið 2010 og 6,6% árið 2009. Landsframleiðsla á liðnu ári er svipuð að raungildi og landsframleiðsla áranna 2006 og 2009. Þjóðarútgjöld á árinu 2011 jukust nokkru meira en nam vexti landsframleiðslu, eða 3,8%. Einkaneysla jókst um 2,7% og fjárfesting um 12,8% en samneysla dróst saman um 0,9%. Útflutningur jókst um 4,1% og innflutningur nokkru meira, eða um 6,8%.

Til baka