Gistiskýrslur 2010


  • Hagtíðindi
  • 28. mars 2011
  • ISSN: 1670-4584

  • Skoða PDF
Seldar gistinætur voru tæpar 3 milljónir árið 2010, en það er svipaður fjöldi og árið 2009. Gistinætur erlendra ríkisborgara voru 71,2% og sem fyrr keyptu Þjóðverjar flestar gistinætur, þá Bretar og síðan Frakkar. Flestar gistinætur voru á hótelum og gistiheimilum og fjölgaði hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu og Norðurlandi vestra. Á Suðurlandi fækkaði gistinóttum mest á milli ára eða um rúm 12%. Þó að sala gistinátta á Suðurlandi hafi dregist saman í fyrra sökum eldgossins í Eyjafjallajökli var hún eigi að síður 7% meiri en árið 2008.

Til baka