Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,1% milli janúar og febrúar 2018. Sjávarafurðir lækkuðu um 2,4% (áhrif á vísitölu -0,6%) en afurðir stóriðju hækkuðu um 5,8% (1,9%). Matvæli hækkuðu um 0,3% (0,1%) og annar iðnaður lækkaði um 1,3% (-0,3%).
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 4,2% frá febrúar 2017 til febrúar 2018. Þar af hefur verð sjávarafurða hækkað um 4,3% en annar iðnaður lækkaði um 6,3%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 13,8% en matvæli hækkað um 0,5% á sama tímabili. Útfluttar afurðir hækkuðu um 8,2% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 2,9%.
Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.
Vísitala framleiðsluverðs í febrúar 2018 | ||||
Breyting frá fyrri mánuði | ||||
Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
Vísitala framleiðsluverðs | 196,3 | 1,1 | 1,1 | 4,2 |
Eftir atvinnugreinum | ||||
Sjávarafurðir | 245,1 | -2,4 | -0,6 | 4,3 |
Stóriðja | 204,9 | 5,8 | 1,9 | 13,8 |
Matvæli | 174,0 | 0,3 | 0,1 | 0,5 |
Annar iðnaður | 141,9 | -1,3 | -0,3 | -6,3 |
Eftir mörkuðum | ||||
Innlend sala | 165,3 | -0,4 | -0,1 | -2,9 |
Útfluttar afurðir | 215,2 | 1,9 | 1,2 | 8,2 |