FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. MARS 2024

Landaður afli íslenskra skipa var 65,4 þúsund tonn í febrúar 2024 sem er 56% minni afli en landað var í febrúar 2023. Uppsjávarafli var rúmlega 25 þúsund tonn en var 113 þúsund tonn í febrúar í fyrra og dróst því saman um 78%, aðallega vegna loðnubrests. Botnfiskafli var tæp 39 þúsund tonn sem er 10% aukning samanborið við febrúar í fyrra.

Aflamagn á tólf mánaða tímabili frá mars 2023 til loka febrúar 2024 var rúmlega 1.272 þúsund tonn sem er 1% samdráttur samanborið við afla á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Botnfiskafli dróst saman um 11% á tólf mánaða tímabilinu á meðan uppsjávarafli jókst um 5%.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.