Út er komið ritið Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2010. Í ritinu kemur m.a. fram að innflutt hráefni til fiskvinnslu var 80.873 tonn árið 2010 og jókst í magni um 37 þúsund tonn frá fyrra ári eða um 84%. Verðmæti þessa innflutnings var 8,2 milljarðar króna sem er tæplega 2 milljarða króna hærri fjárhæð en árið 2009 á verðlagi hvors árs og 31% hærra á föstu verðlagi ársins 2010 miðað við verðvísitölur sjávarafurða. Minna var flutt inn af þorski, ufsa, steinbít, hlýra, síld og norsk-íslenskri síld en árið áður. Innflutningur jókst á loðnu, loðnuhrognum, kolmunna, makríl og rækju. Verðmæti innflutts hráefnis nam 10% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.
Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2010 - Hagtíðindi
Talnaefni