Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 15. júlí 2020 kl. 14:00 frá upprunalegri útgáfu. Í umfjöllun um þorskafla var hann sagður vera 35 þúsund tonn í stað 21 þúsund tonna.
Afli íslenskra fiskiskipa var tæplega 62 þúsund tonn í júní 2020. Botnfiskafli jókst um 23%. Þorskafli var um 21 þúsund tonn, 6355 tonnum meira en árið áður. Tæpum 22,3 þúsund tonnum af uppsjávarafla var landað í júní 2020. Megin uppistaða þess afla var kolmunni, um 13,5 þúsund tonn og makríll 7 þúsund tonn. Enginn uppsjávarafli veiddist í júní í fyrra. Einnig varð aukning í flatfiskafla um 54% og í skelfiskafla um 14%.
Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá júlí 2019 til júní 2020 var rúmlega 999 þúsund tonn sem er 7% minni afli en á sama tímabili ári fyrr.
Afli í júní, metinn á föstu verðlagi, var 38,2% meiri en í júní 2019.
Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggja á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis.
Fiskafli | ||||||
Júní | Júlí-júní | |||||
2019 | 2020 | % | 2018-2019 | 2019-2020 | % | |
Fiskafli á föstu verði | ||||||
Vísitala | 55,1 | 76,2 | 38,2 | |||
Fiskafli í tonnum | ||||||
Heildarafli | 31.627 | 61.962 | 96 | 1.080.276 | 999.447 | -7 |
Botnfiskafli | 28.440 | 34.963 | 23 | 488.963 | 465.329 | -5 |
Þorskur | 14.826 | 21.181 | 43 | 276.138 | 276.169 | 0 |
Ýsa | 1.827 | 2.660 | 46 | 59.098 | 49.328 | -17 |
Ufsi | 5.290 | 4.664 | -12 | 68.699 | 56.618 | -18 |
Karfi | 3.387 | 4.149 | 23 | 54.166 | 52.875 | -2 |
Annar botnfiskafli | 3.110 | 2.309 | -26 | 30.862 | 30.339 | -2 |
Flatfiskafli | 2.710 | 4.167 | 54 | 25.921 | 21.588 | -17 |
Uppsjávarafli | 0 | 22.289 | - | 553.879 | 504.259 | -9 |
Síld | 0 | 1.714 | - | 124.072 | 139.798 | 13 |
Loðna | 0 | 0 | - | 0 | 0 | - |
Kolmunni | 0 | 13.515 | - | 293.771 | 228.959 | -22 |
Makríll | 0 | 7.060 | - | 136.036 | 135.500 | 0 |
Annar uppsjávarfiskur | 0 | 0 | - | 0 | 1 | 4.119 |
Skel-og krabbadýraafli | 477 | 544 | 14 | 11.511 | 8.269 | -28 |
Annar afli | 0 | - | - | 1 | 2 | 68 |