FRÉTT LÍFSKJÖR 09. NÓVEMBER 2015

Í kjölfar hrunsins fjölgaði ört á leigumarkaði. Árið 2008 leigðu 12,9% húsnæði sitt, 6,8% leigðu á almennum markaði og 6,1% leigðu eftir öðrum leiðum á borð við félagsbústaði, stúdentagarða eða á lækkuðu verði af nákomnum. Árið 2014 bjuggu 20,8% í leiguhúsnæði og 12,4% leigðu á almennum markaði og 8,3% eftir öðrum leiðum. Þrátt fyrir þessa fjölgun á leigumarkaði þá var Ísland með næst lægsta hlutfallið í leiguhúsnæði af Norðurlöndunum og næst hæsta hlutfallið sem bjó í skuldlausu eigin húsnæði.


Staða á húsnæðismarkaði tengist aldri og tekjum. Árið 2014, leigði 35,5% fólks á aldrinum 25-34 ára húsnæði sitt en 7,9% bjuggu í skuldlausu eigin húsnæði. Á sama tíma bjuggu 9,7% fólks 65 ára og eldri í leiguhúsnæði en 48,2% í skuldlausu eigin húsnæði. Þá bjuggu 37,4% fólks í lægsta fimmtungi tekjudreifingarinnar í leiguhúsnæði en aðeins 9,3% í hæsta tekjubilinu.

Félagsvísar: Staða á húsnæðismarkaði 2014 - Hagtíðindi

Talnaefni

 

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1286 , netfang lifskjararannsokn@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.