FRÉTT LAUN OG TEKJUR 02. JÚLÍ 2004

Hagstofa Íslands birtir nú í annað sinn tölur um atvinnutekjur í aðalstarfi sem byggðar eru á upplýsingum frá ríkisskattstjóra um staðgreiðsluskyld laun.

Atvinnutekjur hækka um  4,4% milli áranna 2002 og 2003
Meðalatvinnutekjur voru 2.636 þúsund krónur árið 2003 og höfðu hækkað um 4,4% milli ára. Tekjur karla hækkuðu um 3,7% en tekjur kvenna um 5,8%.  Konur höfðu um 61,6% af tekjum karla miðað við 60% árið 2002. 
       Tekjur í fiskveiðum lækkuðu milli ára um 9,7% en tekjur í iðnaði og þjónustu aukast um 5,6% milli ára og mest mælist hækkunin í fjármálaþjónustu eða 9,8%.  Atvinnutekjur eru hæstar um miðbik starfsævinnar þegar fólk er á aldrinum 35-54 ára. Árið 2003 voru atvinnutekjur fólks á þessum aldri að meðaltali 3,2 milljónir króna. Atvinnutekjur karla voru þó mun hærri en kvenna , tæpar 4 milljónir króna hjá körlum borið saman við 2,4 milljónir króna hjá konum.

Heildaratvinnutekjur
Árið 2003 voru skattskyldar heildaratvinnutekjur 422,3 milljarðar króna samanborið við 405,4 miljarða króna árið 2002 og þar af voru 275,5 miljarðar króna heildartekjur á höfuðborgarsvæðinu árið 2003 eða rúm 65% tekna.

Skýringar:
Atvinnutekjur eru skilgreindar sem beinar skattskyldar launagreiðslur fyrir vinnuframlag í aðalstarfi auk skattskyldara dagpeninga og ökutækjastyrks. 
       Heildaratvinnutekjur eru summa allra atvinnutekna fyrir aðal- og aukastarf en ekki dagpeningagreiðslur og ökutækjastyrkur.  Aðalatvinnugrein hvers starfandi manns telst vera sú atvinnugrein sem skilar hæstum tekjum í hverjum mánuði, ef fleiri en ein grein kemur til greina.  Búseta er miðuð við búsetu einstaklings fyrsta hvers mánaðar en ekki aðsetur launagreiðanda.  Aldur er miðaður við þann aldur sem viðkomandi einstaklingur nær í árslok.  Enginn sem er yngri en tólf ára í árslok telst hafa atvinnutekjur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.