Frétt

mánudagur 4. júlí 2011
Nr. 125/2011

Verðmæti seldra framleiðsluvara 2010

Verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2010 var 666 milljarðar króna sem er aukning um tæplega 92 milljarða króna eða 16% frá árinu 2009. Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 11,7% og hefur því verðmæti seldra framleiðsluafurða aukist um 4,3% að raungildi. Framleiðsla fiskafurða og framleiðsla á málmum vega sem fyrr þyngst, þannig nam framleiðsla málma 37,1% af heildarverðmæti árið 2010 og framleiðsla fiskafurða 32,5%. Verðmæti seldra framleiðsluvara án fiskafurða og framleiðslu málma nam tæpum 203 milljörðum  króna á síðasta ári og jókst um rúma 19 milljarða eða um 10,5% frá fyrra ári.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum Hagtíðindum sem Hagstofa Íslands gefur út í dag um verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2010.

Verðmæti seldra framleiðsluvara 2010 - Hagtíðindi

Talnaefni



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar veitir Stefán Sigurðsson í síma 528 1267, netfang idnadarskyrslur[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi