Frétt

fimmtudagur - 19. febrúar 2009
Nr. 26/2009

Skráđir nemendur í framhaldsskólum og háskólum haustiđ 2008

Hagstofa Íslands hefur tekiđ saman tölur um skráđa nemendur í framhaldsskólum og háskólum haustiđ 2008 og gefiđ út hefti í ritröđinni Hagtíđindi.

Alls eru 47.282 nemendur skráđir í framhaldsskóla og háskóla
Haustiđ 2008 eru skráđir nemendur á framhalds- og háskólastigi fleiri en nokkru sinni fyrr eđa 47.282. Í framhaldsskóla eru skráđir 29.271 og 18.011 nemendur í háskóla. Á milli áranna 2007 og 2008 fjölgađi skráđum nemendum um 2,6%. Fjölgunin er öllu meiri á framhaldsskólastigi, eđa um 3,3%, á móti 1,6% á háskólastigi. Fjölgun nemenda skýrist fyrst og fremst af miklum vexti fjarnáms á báđum skólastigum og grunnskólanemendum sem sćkja í auknum mćli í nám á framhaldsskólastigi. Nemendur grunnskóla eru 5,0% skráđra nemenda í framhaldsskólum og hefur fjölgađ um 9,3% á milli ára í framhaldsskólum landsins.

Konur eru í meirihluta međal skráđra nemenda
Konur eru umtalsvert fleiri en karlar međal skráđra nemenda eđa 6.888 fleiri. Alls stunda 27.085 konur nám á móti 20.197 körlum. Konur eru 57,3% nemenda á öllum skólastigum ofan grunnskóla en hlutur karla er 42,7%.

Ţegar skipting kynja er skođuđ eftir skólastigum, eru konur 54,0% nemenda á framhaldsskólastigi, 37,0% nemenda á viđbótarstigi, 64,3% nemenda á háskólastigi og 58,3% nemenda á doktorsstigi.

Flestir nemendur velja bóknám á framhaldsskólastigi og frćđilegt nám á háskólastigi
Í bóklegt nám á framhaldsskólastigi eru skráđir 19.741 nemendur en í starfsnám eru skráđir 9.163 nemendur. Ţví eru 68,3% nemenda á framhaldsskólastigi skráđir í einhvers konar bóknám en 31,7% nemenda skráđir í einhvers konar starfsnám.

Á háskólastigi eru 97,5% nemenda skráđir í frćđilegt háskólanám en einungis 2,5% í starfsmiđađ háskólanám. Konur eru 64,7% nemenda í frćđilegu háskólanámi en 50,1% nemenda sem skráđir eru í starfsmiđađ háskólanám.

Langfjölmennasta einstaka námsbrautin er almenn námsbraut á framhaldsskólastigi. Á ţessa námsbraut eru skráđir 6.870 nemendur. Nćst fjölmennasta námsbrautin er náttúrufrćđibraut en ţar eru skráđir til náms 4.879 nemendur. Fast á hćla náttúrufrćđibrautar kemur félagsfrćđabraut međ 4.545 skráđa nemendur.

Í háskólum eru flestir nemendur skráđir á sviđ viđskiptafrćđa en ţar eru ţeir 2.896. Nćst fjölmennasta námssviđiđ í háskólum er lögfrćđi en ţar eru skráđir til náms 1.290 nemendur.

Í ofangreindum Hagtíđindum má finna yfirlitstölur um heildarfjölda skráđra nemenda í framhalds- og háskólum frá árinu 2002 til 2008. Einnig sundurliđađar tölur eftir skólastigi, kennsluformi og tegundum skóla fyrir sama tímabil. Loks má finna upplýsingar um fjölda nemenda eftir námsstöđu ţeirra. Ítarlegar upplýsingar um fjölda skráđra nemenda haustiđ 2008 eftir einstaka skólum, námsbraut, kyni og kennsluformi má fá međ ţví ađ smella hér.

Skráđir nemendur í framhalds- og háskólum haustiđ 2008 - Hagtíđindi

Talnaefni:
  Framhaldsskólar
  Háskólar
  Yfirlit



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getiđ heimildar.

Nánari upplýsingar veitir Konráđ Ásgrímsson í síma 528 1043.

Athugasemd

   
Nafn Netfang *
   
Hagstofan áskilur sér rétt til ađ fjarlćgja ummćli sem ekki eru talin viđeigandi!

Leitarvél
Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi