Stefnumörkun

Hlutverk
Hagstofa Íslands er sjálfstæð stofnun sem gegnir forystuhlutverki á sínu sviði, samhæfir opinbera hagskýrslugerð á Íslandi og er virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi. Hagstofan sinnir rannsóknum og safnar, vinnur og miðlar áreiðanlegum hagtölum sem lýsa samfélaginu. Stofnunin stuðlar að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum með því að tryggja öllum sama aðgang að upplýsingum.

Gildi
Óhlutdrægni, faglegur metnaður, trúnaður og góð þjónusta eru leiðarljós starfsfólks Hagstofunnar.

Framtíðarsýn
Hagstofan gegnir forystuhlutverki í opinberri hagskýrslugerð og hefur frumkvæði að samstarfi við aðrar stofnanir og fyrirtæki.

Hagstofan er í fararbroddi um samhæfingu upplýsingakerfa sem tengjast hagskýrslugerð, hún kappkostar að einfalda söfnun gagna og beitir traustum rafrænum aðferðum með hóflega svarbyrði að leiðarljósi.

Hagstofan leggur áherslu á góða þjónustu og hæfni þar sem gæði og skilvirkni eru í stöðugri þróun til að mæta vaxandi kröfum, innlendum jafnt sem alþjóðlegum.

Hagstofan leggur áherslu á rafræna miðlun upplýsinga og notendavæna framsetningu þeirra.

Hagstofan er virkur þátttakandi í alþjóðlegu starfi og stenst kröfur evrópska hagskýrslusamstarfsins.

Hagstofan býður gott starfsumhverfi, áhugaverð viðfangsefni og faglegar áskoranir og styður starfsmenn í að viðhalda og bæta við þekkingu sína og hæfni.

Markmið
1. Að efla frumkvæði og forystu á sviði hagskýrslugerðar.
2. Að efla notendavæna miðlun upplýsinga.
3. Að efla gæði og stjórnun.
4. Að fjölga fjármögnunarleiðum og bæta gagnsæi kostnaðar.
5. Að standa jafnfætis erlendum samstarfsstofnunum og uppfylla kröfur EES-samningsins.
6. Að efla hæfni og þekkingu starfsmanna og laða að hæft starfsfólk.

Aðgerðir
1.1 Auka samstarf við opinberar hagskýrslustofnanir á Íslandi og samræma starfshætti.
1.2 Efla notenda- og ráðgjafarhópa og skýra hlutverk þeirra.
1.3 Móta markvissa kynningarstefnu.
1.4 Stuðla að auknu alþjóðlegu samstarfi.

2.1 Bæta notendaviðmót, uppbyggingu vefja og auka myndræna framsetningu.
2.2 Auka samfellu í upplýsingum.
2.3 Hafa frumkvæði að samræmdri framsetningu á opinberum hagtölum á vefnum.
2.4 Móta framtíðarsýn í upplýsingatæknimálum.

3.1 Endurmeta, samræma og auka hagkvæmni verkferla.
3.2 Endurmeta stjórnun og skýra hlutverk og ábyrgð stjórnenda.
3.3 Byggja upp gæðastjórnunarkerfi.
3.4 Koma á áhættugreiningu og -stýringu ásamt viðbragðsáætlun vegna áfalla.

4.1 Bæta forgangsröðun eftir faglegum og rekstrarlegum viðmiðum.
4.2 Móta stefnu um þjónustutekjur.
4.3 Kostnaðargreina verkefni.
4.4 Fjölga samstarfsverkefnum og styrkumsóknum.

5.1 Endurbæta gerð þjóðhagsreikninga.
5.2 Framleiða landbúnaðartölfræði.
5.3 Efla tölfræði um fyrirtæki, vinnutíma og framleiðni ásamt skammtímatölfræði.
5.4 Gera skráarbundið manntal.

6.1 Koma á starfsþróunarstefnu sem fylgt verður eftir.
6.2 Þróa launastefnu.
6.3 Koma á mælingum á viðhorfum starfsmanna til vinnustaðarins og starfskjara.
6.4 Bæta samráð og upplýsingaflæði.

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi