Upplýsingaþjónusta
Hagstofan veitir þjónustu á sviði hagskýrslna. Mestan hluta þessara upplýsinga miðlar Hagstofan á vef sínum og í prentuðum útgáfum. Upplýsingaþjónusta svarar almennum fyrirspurnum sem berast Hagstofunni og leiðbeinir notendum um vefinn. Ofangreind þjónusta Hagstofunnar er án endurgjalds.
Ef notandi óskar eftir frekari upplýsingum en vefur eða starfsfólk veitir skal viðkomandi senda skriflega beiðni til Hagstofu. Fyrir sérvinnslu skal greiða gjald skv. gjaldskrá. Verkbeiðanda er tilkynnt um áætlaðan kostnað áður en ráðist er í vinnslu upplýsinga. Sé óskað eftir endurteknum sérvinnslum þarf að gera um það skriflegan samning þar sem fjöldi afhendinga á 12 mánaða tímabili er ákveðinn. Afsláttur er veittur eftir fjölda afhendinga skv. gjaldskrá. Hagstofu Íslands er heimilt að gera sérstaka samninga um upplýsingamiðlun, sem víkja frá gjaldskrá.
Þeir notendur sem hyggjast sækja um trúnaðargögn til vísindarannsókna þurfa að sækja sérstaklega um aðgengi.
Telji Hagstofan verkbeiðni falla utan eðlilegrar þjónustu þannig að hún raski reglubundnum verkefnum, er henni heimilt að fresta afgreiðslu tímabundið eða synja verkbeiðninni.