Nefndir og hópar

Ráðgjafarnefnd um vísitölu neysluverðs. Nefndin starfar samkvæmt lögum um vísitölu neysluverðs nr. 12/1995 og skal hún vera Hagstofunni til ráðgjafar um gerð vísitölunnar og fylgjast með reglubundnum útreikningi hennar. Nefndin er skipuð einum fulltrúa tilnefndum af Hæstarétti, einum tilnefndum af Alþýðusambandi Íslands og einum tilnefndum af Samtökum atvinnulífsins.
Ráðgjafarnefnd um vísitölu neysluverðs heyrir undir hagstofustjóra.

Notendahópur um verðvísitölur. Hópurinn er skipaður fulltrúum frá eftirtöldum stofnunum, fyrirtækjum og samtökum:
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Seðlabanka Íslands og Viðskiptaráði
  • Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst
  • Viðskiptabönkunum Arion banka, Byr, Íslandsbanka og Landsbankanum
  • Ráðgjafarnefnd um vísitölu neysluverðs skv. lögum nr. 12/1995.
Fundargerðir notendahóps um verðvísitölur

Yfirlit yfir ráðgjafarnefndir og notendahópa

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi