Hér má kaupa áskrift að útgáfum Hagstofunnar með því að fylla í auðu reitina og smella á hnappinn „Panta“.
Áskrifendur Hagtíðinda og Landshaga njóta 5% afsláttar og er hann innifalinn í verði sem hér er uppgefið. Þeir sem kaupa áskrift að öllum efnisflokkum Hagtíðinda fá 15% afslátt. Þegar greiðsla hefur verið innt af hendi fá áskrifendur heftin send heim (um útgáfudaga í tilteknum flokkum, sjá birtingaráætlun).
Athugið að áskrift miðast við heilt ár (frá þeim degi sem áskrift er keypt). Segi áskrifandi ekki upp samningi að ári liðnu lítur Hagstofan svo á að samningur skuli gilda áfram. Segja má upp áskrift rafrænt með því að velja viðeigandi flokk hér að neðan, fylla í auðu reitina og skrifa „Uppsögn“ í reitinn „Athugasemdir“.