Helstu skilgreiningar og aðferð við vigtun

Aldur

Við birtingu gagna eftir aldri svarenda er miðað við þann aldur sem svarendur ná í lok viðmiðunarviku.

Atvinnugrein

Atvinnustarfsemi þeirra fyrirtækja sem fólk starfar hjá eða starfaði síðast hjá er flokkuð í samræmi við Íslenska atvinnugreinaflokkun, ÍSAT 95, sem byggð er á atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins, NACE (1. endursk.). Atvinnustarfsemi er flokkuð með fjögurra tölustafa atvinnugreinarnúmeri. Námugröftur er talinn með iðnaði. Heimilishald með launuðu starfsfólki og starfsemi alþjóðlegra stofnana er talið með annarri samfélagsþjónustu, félagastarfsemi, menningarstarfsemi o.fl.

Atvinnuþátttaka

Í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar er fylgt skilgreiningum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) á grundvallarhugtökum um vinnumarkað. Helstu skilgreiningar eru þessar:
Atvinna er hvers konar vinna gegn endurgjaldi í peningum eða fríðu, ólaunuð aðstoð við fyrirtæki eigin fjölskyldu, ólaunuð vinna við byggingu eigin íbúðarhúsnæðis eða framleiðslu til eigin neyslu. Vinna við heimilishald á eigin heimili eða sjálfboðastörf teljast ekki atvinna í skilningi vinnumarkaðsrannsóknarinnar.
Atvinnulausir teljast þeir sem ekki voru í starfi í viðmiðunarvikunni, geta hafið störf innan tveggja vikna frá því rannsóknin er gerð og uppfylla auk þess eitthvert eftirfarandi skilyrða:
     1. Hafa verið virkir í atvinnuleit sl. fjórar vikur að viðmiðunarviku meðtalinni.
     2. Hafa fundið starf sem byrjar seinna, þó ekki síðar en innan þriggja mánaða.
     3. Bíða eftir að vera kallaðir til vinnu.
Starfandi teljast þeir sem unnu eina klukkustund eða lengur í viðmiðunarvikunni eða voru fjarverandi frá starfi sem þeir gegna að öllu jöfnu. Fólk í fæðingarorlofi telst vera fjarverandi frá vinnu hafi það farið í leyfi úr launuðu starfi jafnvel þótt það hafi ekki hug á að hverfa aftur til sama starfs.
Vinnuafl samanstendur af starfandi og atvinnulausu fólki. Atvinnuþátttaka er hlutfall vinnuaflsins af heildarmannfjöldanum.

Búseta

Við flokkun búsetu er stuðst við þjóðskrá eða nýjar upplýsingar frá svarendum meðan á rannsókn stendur. Á höfuðborgarsvæði eru eftirtalin sveitarfélög: Reykjavík, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður, Bessastaðahreppur, Garðabær, Kópavogur, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Vinnutími

Við útreikning á vinnutíma í viðmiðunarviku er aðeins reiknað með þeim svarendum sem höfðu unnið 1 klst. eða fleiri í aðalstarfi eða aukastarfi. Nokkuð er um brottfall í spurningum um vinnutíma. Þar sem brottfall í vinnutímaspurningum er mismikið eftir starfsstéttum hafa svörin verið bætt með því að setja inn reiknuð gildi. Í stað óþekkts svars er sett líklegasta tölugildi sem fundið er með aðhvarfsgreiningu eftir kyni, starfshlutfalli og starfsstétt. Með þessu móti ætti að fást betra mat á meðalvinnutíma.

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi