Frétt

miðvikudagur 30. maí 2012
Nr. 101/2012

Framleiðsluverð hækkar um 0,5% milli mánaða

Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2012 var 224,8 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 0,5% frá mars 2012. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 278,0 stig, sem er hækkun um 1,2% (vísitöluáhrif 0,4%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju stóð óbreytt í 249,9 stigum. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,6% (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 0,2%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,5% (0,1%) milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði einnig um 0,5% (0,4%).

Miðað við apríl 2011 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 5,3% en verðvísitala sjávarafurða um 12,4%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 3,4% en matvælaverð hefur hækkað um 5,4%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2011
Apríl 1,6 1,7 -0,5 0,2 0,9 1,8
Maí 1,6 0,8 4,6 0,3 0,5 1,9
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7
Júlí 0,2 0,2 -0,5 1,5 1,5 -0,2
Ágúst -0,8 0,5 -2,9 1,5 1,2 -1,3
September -0,6 0,2 -2,6 1,2 1,2 -1,2
Október -1,1 1,8 -4,5 -0,7 0,0 -1,3
Nóvember -0,9 0,5 -4,0 0,2 0,9 -1,5
Desember 0,1 1,9 -1,6 -0,4 -0,2 0,2
2012
Janúar 1,1 1,6 0,4 0,2 1,0 1,1
Febrúar 1,9 -0,8 5,2 0,0 0,3 2,4
Mars 2,7 2,2 4,5 -0,2 0,7 3,3
Apríl 0,5 1,2 0,0 0,6 0,5 0,5

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2011
Apríl 6,0 8,4 4,3 4,7 4,1 6,2
Maí 6,3 11,4 2,5 4,9 5,2 6,3
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0
Júlí 17,1 15,0 23,6 6,9 7,6 19,8
Ágúst 17,2 19,4 20,7 8,7 7,5 20,0
September 13,9 15,3 13,2 10,1 9,4 15,1
Október 12,8 16,3 10,4 8,0 7,8 14,1
Nóvember 8,4 16,2 -2,5 7,7 9,6 8,0
Desember 6,7 18,4 -6,4 7,3 8,0 6,3
2012
Janúar 5,7 16,3 -8,1 7,5 9,4 4,6
Febrúar 4,9 12,7 -6,5 6,4 8,4 3,9
Mars 6,4 12,9 -3,9 5,0 8,2 5,9
Apríl 5,3 12,4 -3,4 5,4 7,7 4,5

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í apríl 2012 var 0,4% hærra en í mars 2012 og 5,6% hærra en í apríl 2011. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200, netfang framleidsluverd[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi