Frétt
miðvikudagur 14. janúar 2004
Nr. 5/2004
Vísitala neysluverðs í janúar 2004
Vísitala neysluverðs í janúar 2004 er 230,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,04% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 224,5 stig, 0,09% lægri en í desember.
Vetrarútsölur eru víðast hafnar og hafa þær í för með sér 11% verðlækkun á fötum og skóm (vísitöluáhrif -0,6%) og 1,9% verðlækkun á húsgögnum og heimilisbúnaði (-0,11%). Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,3% (0,19%) og ýmis gjöld vegna húsnæðis hækkuðu um 9,9% (0,11%).
Áætlað er að meðalverð á þjónustu sérfræðilækna hafi hækkað um 85% eftir að samningar milli Tryggingastofnunar ríkisins og sjálfstætt starfandi sérfræðilækna runnu út um áramótin. Metin áhrif á vísitöluna eru 0,24% en í því mati er gert ráð fyrir að komum til sérfræðilækna fækki umtalsvert.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,4% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,5% sem jafngildir 1,9% verðbólgu á ári.
Árið 2003 var vísitala neysluverðs að meðaltali 227,3 stig, 2,1% hærri en árið áður. Sambærileg hækkun var 4,8% árið 2002 og 6,7% árið 2001.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis var að meðaltali 222,8 stig árið 2003, 0,7% hærri en árið áður. Sambærileg hækkun var 4,6% árið 2002 og 6,8% árið 2001.
Vísitala neysluverðs í janúar 2004, sem er 230,1 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2004. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.543 stig fyrir febrúar 2004.

