Frétt
fimmtudagur - 25. febrúar 2010
Nr. 37/2010
Nýskráningar og gjaldþrot fyrirtækja í janúar 2010
Í janúar 2010 voru skráð 157 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 223 einkahlutafélög í janúar 2009, sem jafngildir tæplega 30% fækkun milli ára. Einnig voru skráð 96 samlagsfélög (slf) í janúar sem er svipaður fjöldi og skráður var allt árið 2009 þegar 97 samlagsfélög voru skráð. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum en flest samlagsfélög voru skráð í Heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Í janúar 2010 voru 92 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 73 fyrirtæki í janúar 2009, sem jafngildir rúmlega 26% fjölgun milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.
Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta skipti mánaðarlegar tölur yfir nýskráningar fyrirtækja og félaga eftir rekstrarformi og bálkum atvinnugreina. Mánaðarlegar tölur yfir nýskráningar ná aftur til janúar 2008 og munu framvegis uppfærast mánaðarlega samhliða uppfærslu á tölum yfir gjaldþrot fyrirtækja.
Talnaefni