Frétt
miðvikudagur 7. október 2009
Nr. 180/2009
Notkun heimila og einstaklinga á tölvum og neti 2009
Út er komið hefti í efnisflokknum Upplýsingatækni þar sem birtar eru niðurstöður úr áttundu rannsókn Hagstofunnar á notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og neti.
Niðurstöður sýna að tölvur eru á 92% íslenskra heimila og 90% eru með nettengingu. Helmingur íslenskra heimila er með tvö sjónvarpstæki eða fleiri og 48% eru með flatskjá. Nær öll nettengd heimili eru með háhraðatengingu, eða 97%.
Tölvu- og netnotkun er mjög almenn en 93% landsmanna á aldrinum 16-74 ára höfðu notað tölvu og netið síðustu þrjá mánuði fyrir rannsóknina. Níu af hverjum tíu netnotendum senda tölvupóst og 78% lesa vefútgáfur dagblaða eða tímarita. Þrír af hverjum fjórum netnotendum nota netið til að leita upplýsinga á heimasíðum opinberra aðila og mikill meirihluti þeirra segir þessa upplýsingaleit ganga vel.
Hlutfall þeirra sem versla á netinu lækkar milli ára í fyrsta skipti síðan mælingar hófust árið 2002. Þeir sem versla á netinu kaupa síður farmiða, gistingu og aðra ferðatengda þjónustu en fyrri ár. Í ár birtast í fyrsta skipti upplýsingar um hvaðan fólk verslar á netinu, hversu oft það verslar og fyrir hvað mikið.
Í heftinu er yfirlit yfir helstu niðurstöður. Ítarlegri niðurstöður má finna á heimasíðu Hagstofunnar undir efnisliðnum Upplýsingatækni.
Notkun heimila og einstaklinga á tölvum og neti 2009 - Hagtíðindi