Ferðamál, samgöngur og upplýsingatækni

Talnaefni
Útgáfur

Gistiskýrslur 2012

Ferðamál, samgöngur og upplýsingatækni | 12. apríl 2013
Gistiskýrslur 2012 Gistinætur voru rúmar 3,7 milljónir hér á landi árið 2012 og fjölgaði um 15,1% frá fyrra ári. Gistinætur erlendra gesta voru um 77% af heildarfjölda gistinátta á árinu. Þeim fjölgaði um 18% frá árinu 2011 en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6%. Mikil aukning hefur orðið á seldum gistinóttum á undanförum árum. Þannig hefur heildarfjöldi gistinátta aukist um ríflega eina milljón eða um 36,7% á síðastliðnum 5 árum. Eins og mörg undanfarin ár gistu Þjóðverjar flestar nætur, þá Bretar og svo Bandaríkjamenn. Gistinóttum Kínverja fjölgaði þó hlutfallslega mest í samanburði við árið 2011 eða um 72%.
Fleiri útgáfur
Fréttir
Ferðamál | 7. maí 2013

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 22% í mars

Gistinætur á hótelum í mars voru 163.200 og fjölgaði um 22% frá mars í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 79% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 26% frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 10%.Nánar
Fleiri fréttir
Væntanlegt efni
Dagsetning Titill
Fáðu áminningu í pósti6.6.2013 Gistinætur og gestakomur á hótelum í apríl 2013
Fáðu áminningu í pósti5.7.2013 Gistinætur og gestakomur á hótelum í maí 2013
Fáðu áminningu í pósti7.8.2013 Gistinætur og gestakomur á hótelum í júní 2013
Fáðu áminningu í pósti5.9.2013 Gistinætur og gestakomur á hótelum í júlí 2013

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi