Starfsemi

Á efnahagssviði Utanríkisverslunardeild starfar að úrvinnslu gagna um útflutning, innflutning og vöruskiptin við útlönd. Vísitöludeild vinnur vísitölu neysluverðs, vísitölu byggingarkostnaðar, vísitölu framleiðsluverðs og skyldar verðvísitölur. Deild um þjóðhagsreikninga og opinber fjármál vinnur að framleiðslu- og ráðstöfunaruppgjöri þjóðhagsreikninga, gerð ársfjórðungsreikninga, tekjuathugunum, gerð hagvísa og annast hagskýrslugerð um búskap hins opinbera og tekjuskiptingu. Rósmundur Guðnason er skrifstofustjóri efnahagssviðs.

Á félagsmálasviði starfar atvinnu- og félagsmáladeild að hagskýrslugerð um vinnumarkað, lífskjör og félagsmál, heilbrigðismál, stöðu kynja, dómsmál og umhverfismál. Launa- og kjaramáladeild annast söfnun og úrvinnslu gagna um kaup og kjör og launakostnað. Mannfjölda- og manntalsdeild annast skýrslugerð um mannfjöldann og breytingar hans. Mennta- og menningarmáladeild safnar og vinnur úr gögnum um nemendur og skólamál, menningarmál og fjölmiðla. Magnús S. Magnússon er skrifstofustjóri félagsmálasviðs og er hann jafnframt staðgengill hagstofustjóra.

Á fyrirtækjasviði starfar framleiðslu- og fyrirtækjadeild að hagskýrslugerð um fyrirtæki og fyrirtækjskrá til hagskýrslugerðar. Á sviðinu er einnig unnin tölfræði um afla, iðnaðarframleiðslu, gistinætur og notkun upplýsingatækni. Böðvar Þórisson er skrifstofustjóri fyrirtækjasviðs.
 
Þjónustu- og þróunarsvið fæst við ýmis verkefni sem tengjast allri starfsemi Hagstofunnar. Tvær deildir heyra undir sviðið, rannsóknir og gagnasöfnun og upplýsingatækni og miðlun. Rannsóknir og gagnasöfnun vinnur að framkvæmd rannsókna og annarri gagnasöfnun. Upplýsingatækni og miðlun annast vefi Hagstofunnar, útgáfumál, upplýsingagjöf og fer með allt er snertir tölvukerfi og hugbúnað Hagstofunnar. Innan þessa sviðs er enn fremur unnið að ýmsum þróunarmálum sem varða meðal annars hugbúnað, staðla, flokkunarkerfi og gæðamál. Hrafnhildur Arnkelsdóttir er skrifstofustjóri þjónustu- og þróunarsviðs.

Rannsóknardeild.  Með breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, sbr. 47. gr. l. nr. 98/2009,  var Hagstofunni falið að  starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu sem er aðskilin hagskýrslustarfseminni. Rannsóknareiningin skal fylgjast með afkomu þjóðarbúsins, semja þjóðhagsspár og áætlanir og birta opinberlega. Um birtingar á skýrslum rannsóknareiningarinnar gilda sömu reglur og um birtingu hagskýrslna. Aðrir fá ekki aðgang að efninu fyrir birtingu nema sérstakar aðstæður krefjist þess og eru viðkomandi bundnir trúnaði.  Ber að upplýsa um slíkar undantekningar opinberlega. Sérfræðingar fjármálaráðuneytis fá aðgang að drögum að þjóðhagsspá áður en hún er birt opinberlega vegna samspils opinberra fjármála og þjóðhagsspár við undirbúning fjárlagafrumvarps og fjárlaga. Rannsóknardeildin heyrir beint undir hagstofustjóra.  

Rekstur og fjármál heyra beint undir hagstofustjóra og er Hólmfríður Gísladóttir fjármálastjóri. Starfsmannahald og fræðslumál heyra einnig beint undir hagstofustjóra og er Ólafur Arnar Þórðarson starfsmannastjóri.

Hagstofunni stýrir hagstofustjóri. Ólafur Hjálmarsson var skipaður hagstofustjóri frá og með 1. mars 2008. Hagstofustjóri, skrifstofustjórar og fjármálastjóri mynda yfirstjórn Hagstofunnar.
 
Hagstofa Íslands tók til starfa árið 1914. Til ársloka 2007 var hún eitt ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Hagstofan hefur lengst af starfað samkvæmt stofnlögum sínum frá 1913 og lögum og reglugerð um Stjórnarráð Íslands. Hinn 1. janúar 2008 var Hagstofa Íslands lögð niður sem ráðuneyti. Þá tóku gildi ný lög um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð og komu þau að mestu í stað eldri löggjafar um starf Hagstofunnar. Samkvæmt þeim er Hagstofan sjálfstæð stofnun sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðherra. Í 1. gr. laganna segir að Hagstofan sé miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu og hafi forystu um tilhögun, samræmingu og framkvæmd hennar svo og um samskipti við alþjóðastofnanir á þessu sviði.

Auk hinna nýju laga um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð og sérlaga um verð- og launavísitölur starfar Hagstofan í samræmi við samþykktir Sameinuðu þjóðanna um grundvallarreglur um opinbera hagskýrslugerð; verklagsreglur í hagskýrslugerð svo og við ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónupplýsinga. Ennfremur hefur Hagstofan sett sér eigin reglur um meðferð trúnaðargagna.

Starfsemi þjóðskrár sem annast almannaskráningu var flutt frá Hagstofu Íslands til dómsmálaráðuneytis 1. júlí 2006.

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi