Nánar um flokk

Hagstofa Íslands tekur saman upplýsingar um utanríkisverslun Íslands, þ.e. útflutning og innflutning á vöru og þjónustu og reiknar vöruskipti við útlönd og þjónustujöfnuð við útlönd sem eru mikilvægir mælikvarðar á efnahagsþróun í landinu. Helstu heimildir um vöruútflutning og vöruinnflutning eru tollskýrslur en upplýsingar um þjónustuviðskipti koma frá fyrirtækjum og úr upplýsingum um greiðslukortaviðskipti. Fylgt er alþjóðlegum stöðlum um skilgreiningu og meðferð talnaefnisins. Flokkun útfluttrar og innfluttrar vöru byggist á tollskrá en eru einnig birtar með öðrum hætti s.s. eftir hagrænum flokkum, vinnslugreinum, atvinnugreinum, einstökum löndum og markaðssvæðum. Flokkun útfluttrar og innfluttrar þjónustu byggir á svokallaðri EBOPS þjónustuflokkun.

Þjónusta sem veitt er:

  • almennum fyrirspurnum er svarað í síma 528 1100 og 528 1150 og með tölvupósti
  • hægt er að vera áskrifandi að upplýsingum um utanríkisverslun
  • á bókasafni Hagstofunnar eru veittar upplýsingar um utanríkisverslun, hægt er að fá þar ljósrit úr skýrslum eða gögn í tölvutæku formi
     

Nánari upplýsingar veitir:

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi