Nánar um flokk

Hagstofa Íslands gefur árlega út ítarlegar töflur um mannfjölda og breytingar hans. Birtar er tölur um mannfjöldann miðað við 1. janúar (á miðnætti í upphafi árs) og 1. júlí (miðársmannfjöldi). Hagstofan birtir einnig ársfjórðungslega tölur um mannfjöldann í lok hvers ársfjórðungs og fæðingar, andlát og búferlaflutninga í ársfjórðungi en þær eru minna sundurliðaðar og ekki eins nákvæmar og árstölurnar.

Mestan hluta 20. aldar þegar manntöl voru aðalheimild mannfjöldatalna og frá tilkomu Þjóðskrár til 1997 voru mannfjöldatölur jafnan miðaðar við 1. desember ár hvert. Útgáfu miðað við þá dagsetningu hefur verið hætt nema að því marki sem nauðsynlegt er til að stjórnvöld geti uppfyllt lög og reglugerðir um skiptingu trúfélagsgjalda og Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Þjóðskráin er helsta heimild Hagstofunnar um breytingar mannfjöldans, en til Þjóðskrár berast allar upplýsingar um hjónavígslur, skilnaði, fæðingar, dauðsföll, breytingar á heimilisfangi, ríkisfangi og trúfélagi, svo og ættleiðingar og breytingar á forsjá barna. Hagstofan fær auk þess öll dánarvottorð sem gefin eru út en eftir þeim eru dánarorsakir flokkaðar. Ennfremur hefur Hagstofan tekið saman upplýsingar um erlendan bakgrunn landsmanna. Allir þessir þættir liggja til grundvallar árlegri skýrslugerð Hagstofunnar.

Auk þessa gerir Hagstofan dánar- og ævilengdartöflur, mannfjöldaspár og tekur saman talnaefni um nöfn og nafngiftir. 

Sögulegt yfirlit um mannfjöldaheimildir á Íslandi

Þjónusta sem veitt er:

  • almennum fyrirspurnum er svarað í síma 528 1100 og með tölvupósti
  • hægt er að vera áskrifandi að upplýsingum um mannfjöldann
  • á bókasafni Hagstofunnar eru veittar upplýsingar um mannfjöldann, hægt er að fá þar ljósrit úr skýrslum eða gögn í tölvutæku formi
      

Nánari upplýsingar veitir:

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi