Ferðamál, samgöngur og upplýsingatækni
Talnaefni
Útgáfur
Gistiskýrslur 2011
|
|
Gistinætur voru rúmar 3,2 milljónir árið 2011 og fjölgaði um 8,3% milli ára. Erlendir ríkisborgarar gistu flestar nætur (75%) og fjölgaði um 14% frá árinu áður. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 6%. Eins og undanfarin ár gistu Þjóðverjar hér flestar nætur, þá Bretar og svo Bandaríkjamenn. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum Bandaríkjamanna mest milli ára (tæp 64%). Flestar gistinætur voru á hótelum og gistiheimilum (alls 70%) og mest fjölgun var á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. |
Fréttir
Ferðamál | 4. maí 2012
Gistinóttum á hótelum í mars fjölgar um 38%
Gistinætur á hótelum í mars voru 134.000 samanborið við 97.300 í mars 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 77% af heildarfjölda gistinátta í mars en gistinóttum þeirra fjölgaði um 45% samanborið við mars 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um ríflega 17%.Nánar
Fleiri fréttir