Reglur um birtingar

    Reglur um birtingar
  • Allt útgefið efni Hagstofu Íslands er birt samkvæmt áætlun: fréttatilkynningar, hagtölur og útgáfur.
  • Hagstofan gerir birtingaráætlun fyrir heilt almanaksár (1. janúar til 31. desember) og gefur hana út í nóvember ár hvert. Á henni eru fastar dagsetningar fyrir verðtryggingarvísitölur, launavísitölu (þar með talda vísitölu greiðslujöfnunar), svo og hagtölur um landsframleiðslu, vinnumarkað og utanríkisverslun.
  • Annað efni en það sem að ofan greinir er fært á birtingaráætlunina í lotum. Hver lota er tveir heilir almanaksmánuðir (núverandi og næsti). Í því felst að dagsetningar eru fullgildar tvo mánuði fram í tímann á birtingaráætluninni. Aðrar dagsetningar geta tekið breytingum.
  • Reynist óhjákvæmilegt að víkja frá fastri dagsetningu sem fellur undir lotu gefur Hagstofan út fréttatilkynningu um það.
  • Hagstofan birtir öllum notendum sínum efni sitt samtímis. Allt efni á birtingaráætlun er gefið út kl. 9.00 að morgni. Notendur geta fengið sendar tilkynningar um nýjar fréttir með tölvupósti, auk þess sem skiptiborð Hagstofunnar, upplýsingaþjónusta eða tiltekið verksvið veitir upplýsingar frá kl. 9.00 birtingardaginn.
    Reglur um leiðréttingar á fréttum
  • Ef rangar niðurstöður koma fram í fréttum Hagstofunnar er gefin út ný frétt með leiðréttum tölum og þess getið að um leiðrétta frétt sé að ræða. Tilkynning er einnig birt í upphaflegu fréttinni um leið og villa er staðfest, jafnvel þótt ekki hafi verið gengið frá leiðréttingu.
  • Komi fram villur í myndritum og töflum í frétt er hún leiðrétt og tilkynning þess efnis sett í fréttina.

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi