Fréttir
Ferðamál | 3. febrúar 2012
Gistinóttum fjölgar um 27% í desember
Gistinætur á hótelum í desember voru 69.200 samanborið við 54.300 í desember 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 76% af heildarfjölda gistinátta í desember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 37% samanborið við desember 2010. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 4%.Nánar
Utanríkisverslun | 3. febrúar 2012
Vöruskiptin í janúar voru hagstæð um 12,0 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2012 var útflutningur fob tæpir 49,3 milljarðar króna og innflutningur fob 37,2 milljarðar króna. Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Nánar
Utanríkisverslun | 2. febrúar 2012
Leiðrétting á vöruskiptunum 2011
Vegna villu í grunngögnum í desember þarf að leiðrétta bráðabirgðatölur um vöruskiptin við útlönd 2011. Útflutningur í desember 2011 lækkar því um 7,6 milljarða í heild. Endanlegar niðurstöður um vöruskiptin fyrir árið 2011 verða gefnar út í apríl 2012.Nánar