Frétt

ţriđjudagur 28. febrúar 2012
Nr. 36/2012

Kennarar međ kennsluréttindi hafa aldrei veriđ fleiri

Aldrei áđur í mćlingum Hagstofunnar hefur hlutfall kennara međ réttindi mćlst hćrra. Á árunum 1998-2008 var hlutfall réttindakennara á bilinu 80-87%. Haustiđ 2010 voru 92,3% kennara međ kennsluréttindi og haustiđ 2011 eru 95,5% kennara međ kennsluréttindi. Haustiđ 2011 voru 213 manns viđ kennslu án kennsluréttinda og er ţađ mikil breyting frá haustinu 2002 ţegar 931 einstaklingur án réttinda vann viđ kennslu í grunnskólum landsins.

Hćst er hlutfall réttindakennara á landinu á höfuđborgarsvćđinu utan Reykjavíkur, ţar sem 97,5% kennara hafa kennsluréttindi. Ađeins á Norđurlandi vestra (88,0%), Austurlandi (87,8%) og Vestfjörđum (84,3%) hafa fćrri en 90% kennara kennsluréttindi. Hlutfall kennara međ kennsluréttindi á landsbyggđinni hefur aukist hratt síđustu ár, frá ţví ađ vera undir 50% á tíunda áratug síđustu aldar í einstaka landshlutum.

Starfsfólki viđ kennslu fćkkar ţriđja áriđ í röđ
Haustiđ 2011 eru 7.337 starfsmenn í 6.681 stöđugildi í grunnskólum á Íslandi. Ţar af eru 4.743 starfsmenn viđ kennslu í 4.559 stöđugildum. Starfsfólki fćkkađi ţriđja áriđ í röđ. Starfsmönnum viđ kennslu, ţ.e. skólastjórnendum, deildarstjórum og kennurum fćkkađi um 143, sem er fćkkun um 2,9%. Frá árinu 2008, ţegar starfsmenn viđ kennslu voru flestir, hefur ţeim fćkkađ um 358 manns (7,0%). Sé litiđ á stöđugildi hefur stöđugildum sama hóps fćkkađ um 112 frá fyrra ári, sem er fćkkun um 2,4%. Frá árinu 2008 hefur stöđugildum starfsmanna viđ kennslu fćkkađ um 457 (9,1%). Öđrum starfsmönnum grunnskólans en starfsfólki viđ kennslu hefur fćkkađ um 189 manns frá hausti 2008 (6,8%) og stöđugildum ţeirra fćkkađ um 194 (8,4%).

Haustiđ 2011 eru karlar 19,9% starfsfólks viđ kennslu og er ţađ í fyrsta skipti sem hlutur ţeirra fer undir 20 af hundrađi.

Ţegar starfshlutfall starfsmanna viđ kennslu og stjórnun er skođađ nánar sést ađ 688 fćrri einstaklingar eru nú skráđir í meira en fullt starf en haustiđ 2008. Svo virđist sem yfirvinna hafi minnkađ hjá ţessum hópi frá hausti 2008.

Meira brottfall međal starfsmanna viđ kennslu
Tćplega 730 (729) starfsmenn viđ kennslu haustiđ 2010 eru ekki starfandi í grunnskólanum haustiđ 2011, eđa 14,9% starfsmanna. Ţeir hafa hćtt sökum aldurs, eru í leyfi eđa hafa horfiđ til annarra starfa. Ţetta er meira brottfall en var áriđ á undan ţegar ţađ mćldist 13,2%. Brottfall úr kennslu er hlutfallslega meira međal ţeirra sem eru í hlutastarfi en í fullu starfi. Ţá er brottfall umtalsvert hćrra međal starfsmanna viđ kennslu sem eru án kennsluréttinda (39,0%), samanboriđ viđ kennara međ réttindi (12,9%). 

Međalaldur kennara heldur áfram ađ hćkka
Yngri kennurum fćkkar meira á milli ára en ţeim sem eldri eru. Ţannig fćkkar kennurum sem eru yngri en 45 ára um 137 frá fyrra ári en 60-64 ára kennurum fjölgar um 21. Áriđ 1998 voru 59,1% kennara yngri en 45 ára. Haustiđ 2011 er ţetta hlutfall komiđ niđur í 47,5% og hefur ţví eldri kennurum fjölgađ sem ţessu nemur. Međalaldur starfsmanna viđ kennslu er nú 45,3 ár.

Leikskóli, grunnskóli og tónlistarskóli í einni stofnun
Í kjölfar laga um leikskóla og grunnskóla frá árinu 2008 er orđiđ algengara ađ leikskólar og grunnskólar og jafnvel tónlistarskólar séu reknir sem ein skólastofnun međ einum stjórnanda. Í gagnasöfnun haustiđ 2011 eru tćplega 30 skólastofnanir ţar sem slíkur samrekstur á sér stađ. Ţetta rekstrarform er algengara í minni sveitarfélögum á landsbyggđinni en í stćrri sveitarfélögum ţó svo ađ undantekningar séu til frá ţví.

Talnaefni



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getiđ heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000, netfang menntamal[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi