Frétt

mánudagur 30. janúar 2012
Nr. 18/2012

Framleiðsluverð sjávarafurða hækkar um 1,9% milli mánaða

Vísitala framleiðsluverðs í desember 2011 var 211,4 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 0,1% frá nóvember 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 266,6 stig, sem er hækkun um 1,9% (vísitöluáhrif 0,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 226,5 stig, lækkaði um 1,6% (-0,6%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,4% (-0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,0% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,2% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 0,2%.

Miðað við desember 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,7% en verðvísitala sjávarafurða um 18,4%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 6,4% en matvælaverð hefur hækkað um 7,3%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7
Febrúar 2,7 2,4 3,4 1,0 1,2 3,1
Mars 1,3 2,0 1,6 1,1 0,8 1,4
Apríl 1,6 1,7 -0,5 0,2 0,9 1,8
Maí 1,6 0,8 4,6 0,3 0,5 1,9
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7
Júlí 0,2 0,2 -0,5 1,5 1,5 -0,2
Ágúst -0,8 0,5 -2,9 1,5 1,2 -1,3
September -0,6 0,2 -2,6 1,2 1,2 -1,2
Október -1,1 1,8 -4,5 -0,7 0,0 -1,3
Nóvember -0,9 0,5 -4,0 0,2 0,9 -1,5
Desember 0,1 1,9 -1,6 -0,4 -0,2 0,2

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
December 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3
Febrúar 2,7 4,7 1,5 3,3 3,2 2,2
Mars 6,9 6,1 12,1 5,0 3,5 7,7
Apríl 6,0 8,4 4,3 4,7 4,1 6,2
Maí 6,3 11,4 2,5 4,9 5,2 6,3
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0
Júlí 17,1 15,0 23,6 6,9 7,6 19,8
Ágúst 17,2 19,4 20,7 8,7 7,5 20,0
September 13,9 15,3 13,2 10,1 9,4 15,1
Október 12,8 16,3 10,4 8,0 7,8 14,1
Nóvember 8,4 16,2 -2,5 7,7 9,6 8,0
Desember 6,7 18,4 -6,4 7,3 8,0 6,3

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í desember 2011 var 1,1% hærra en í nóvember 2011 og 4,8% hærra en í desember 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200, netfang framleidsluverd[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi