Frétt

mánudagur 26. september 2011
Nr. 175/2011

Nám í erlendum tungumálum í grunnskólum og framhaldsskólum 2010-2011

Hagstofa Íslands hefur tekiđ saman tölur um nemendur í grunn- og framhaldsskólum sem lćrđu erlend tungumál skólaáriđ 2010-2011. Tölurnar eru birtar í tilefni af degi tungumála í Evrópu 26. september.

Tölurnar sýna međal annars ađ aldrei hafa fleiri nemendur lćrt ensku í grunnskólum landsins, en 78,9% grunnskólanemenda lćra ensku. Ađ međaltali lćra framhaldsskólanemendur 1,41 tungumál skólaáriđ 2010-2011, sem er svipađ og undanfarin ár. Skólaáriđ 2010-2011 voru nemendur í kínversku bćđi í grunnskólum og framhaldsskólum á Íslandi.

Fćrri grunnskólanemendur lćra norsku eđa sćnsku í stađ dönsku
Nemendur hefja nú flestir dönskunám í 7. bekk, viđ 12 ára aldur. Í mörgum skólum geta nemendur sem hafa kunnáttu í norsku eđa sćnsku, valiđ ţau tungumál í stađ dönsku. Á síđastliđnu skólaári lćrđi 101 barn sćnsku frekar en dönsku og 78 börn lćrđu norsku. Nemendur í sćnsku og norsku hafa ekki veriđ fćrri frá upphafi gagnasöfnunar Hagstofunnar áriđ 1999.

Fćrri grunnskólanemendur lćra ţrjú erlend tungumál en kínverska kennd í fyrsta sinn
Grunnskólanemendum sem lćra ţrjú tungumál hefur fariđ fćkkandi frá skólaárinu 2001-2002 ţegar ţeir voru flestir (1.656 nemendur, 3,8% nemenda). Síđastliđiđ skólaár lćrđu 720 grunnskólanemendur ţrjú tungumál, 1,7% nemenda. Ţriđja tungumál er yfirleitt kennt sem valgrein í íslenskum grunnskólum.

 


Alls lćrđu 463 grunnskólanemendur spćnsku, 179 börn ţýsku, 174 börn lćrđu frönsku og 23 börn kínversku. Ekki hafa áđur veriđ grunnskólanemendur í kínversku frá upphafi gagnasöfnunar Hagstofu Íslands.

Tćplega 19 ţúsund framhaldsskólanemendur lćra erlend tungumál
Skólaáriđ 2010-2011 lögđu 18.520 nemendur á framhaldsskólastigi stund á nám í erlendum tungumálum eđa 73,7% nemenda á ţessu skólastigi. Ţetta er svipađ hlutfall og undanfarin ár en skólaáriđ 2009-2010 voru 73,4% framhaldsskólanema skráđir til náms í einhverju erlendu tungumáli.

Íslenskir framhaldsskólanemar lćra kínversku og japönsku
Nemendum í tungumálum sem fáir lćra hér á landi hefur fjölgađ. Í fyrsta sinn frá upphafi gagnasöfnunar Hagstofu Íslands áriđ 1999 lćra íslenskir framhaldsskólanemendur kínversku en 18 nemendur lćrđu kínversku á síđasta skólaári. Ţá hefur nemendum sem lćra japönsku í framhaldsskólum fjölgađ verulega. Alls stunduđu 147 nemendur nám í japönsku skólaáriđ 2010-2011 en voru 114 áriđ á undan. Ađ auki lćrđu 29 nemendur rússnesku í framhaldsskólum skólaáriđ 2010-2011 en voru 11 áriđ á undan. Nemendur sem lćra íslensku sem erlent tungumál voru 368 og hefur fćkkađ um 47 frá fyrra skólaári.

 


Flestir framhaldsskólanemendur lćra ensku eđa 15.454, sem eru 61,5% nemenda. Nćstflestir eru nemendur í dönsku eđa 8.268; eđa 32,9% nemenda. Ţessi tungumál eru skyldunámsgreinar fyrir flesta nemendur í framhaldsskólum. Ţýska er í ţriđja sćti en skólaáriđ 2010-2011 voru 4.504 nemendur skráđir í ţýskunám; 17,9% framhaldskólanemenda. Spćnska er fjórđa algengasta erlenda tungumáliđ í framhaldsskólum međ 4.153 nemendur, 16,5% nemenda. Franska er í fimmta sćti međ 2.289 nemendur, 9,1% nemenda.

Tungumálanám er vinsćlla međal stúlkna en pilta í framhaldsskólum
Stúlkur sćkja frekar í tungumálanám í framhaldsskólunum en piltar. Alls lćra 73,8% stúlkna og 73,5% pilta tungumál í framhaldsskólum. Hlutfall kynjanna er nokkuđ jafnt í ţeim tungumálum sem eru skyldugreinar samkvćmt námsskrá, ţ.e. í ensku og dönsku. Fleiri piltar en stúlkur lćra ţýsku en fleiri stúlkur lćra önnur erlend mál.

 

Um gögnin
Gögnum um tungumálanám nemenda grunnskóla er safnađ einu sinni á ári fyrir allt skólaáriđ. Gögnum um nemendur framhaldsskóla var allt til ársins 2002 einungis safnađ á haustin. Skólaáriđ 2002-2003 var ađ auki fariđ ađ safna gögnum um nemendur í tungumálanámi á vormisseri. Einungis eru taldir ţeir nemendur í tungumálanámi á vormisseri sem einnig eru skráđir í nám á haustmisseri sama skólaár. Upplýsinga er eingöngu aflađ um nemendur í lifandi tungumálum og ţví eru ekki taldir nemendur í forngrísku, latínu né esperantó.

Talnaefni
    Grunnskólar
    Framhaldsskólar



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getiđ heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000, netfang menntamal[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi