Frétt
miđvikudagur 26. ágúst 2009
Nr. 143/2009
Starfstími í framhaldsskólum 2008-2009
Samanlagđur fjöldi kennsludaga og prófadaga nemenda í framhaldsskólum skólaáriđ 2008-2009 var á bilinu 164 til 185 eftir skólum, en ađ međaltali 174,7. Ţađ er svo til óbreyttur fjöldi daga frá fyrra skólaári. Ţetta kemur fram í upplýsingum frá framhaldsskólunum til Hagstofu Íslands.
Kennsludagar skiptast í reglulega kennsludaga og ađra kennsludaga. Reglulegir kennsludagar voru frá 142 til 179 eftir skólum og stafar munurinn af mismunandi skipulagi skólastarfsins. Međalfjöldi reglulegra kennsludaga var 147,4 sem er fćkkun um 0,2 daga frá fyrra skólaári. Reglulegir kennsludagar voru ađ međaltali 2,5 fleiri á vorönn en á haustönn. Ađ auki voru ađrir kennsludagar 2,2 ađ međaltali.
Dagar sem einungis var variđ til prófa og námsmats voru frá 8 til 30 ađ tölu, međ einni undantekningu. Flestir skólar eru međ ákveđinn prófatíma en í öđrum skólum fara próf fram á kennsludögum. Ađ međaltali var 25 dögum variđ til prófa og námsmats sem er óbreyttur fjöldi frá síđastliđnu skólaári.
Í kjarasamningum kennara er gert ráđ fyrir samtals 175 kennslu- og prófadögum á níu mánađa starfstíma skóla og ađ auki fjórum vinnudögum kennara utan árlegs níu mánađa starfstíma. Heildarfjöldi vinnudaga kennara á skólaárinu 2008-2009 reyndist vera frá 175 til 196. Međalfjöldi vinnudaga kennara var 181,3 og er ţađ fćkkun um tćplega einn dag frá síđastliđnu skólaári. Ţar af voru vinnudagar kennara ađ međaltali 178,3 á árlegum starfstíma skóla.
Sérdeildir starfa viđ 21 skóla
Í gagnasöfnun um skólahald er einnig spurt hvort sérdeild sé starfandi viđ skólann eđa ekki. Fram kemur ađ sérdeild er starfandi viđ 21 framhaldsskóla og er fjöldinn óbreyttur frá fyrra ári.
Ţá er einnig spurt um form kennslunnar, hvort í skólanum sé áfangakerfi eđa bekkjarkerfi. Ţegar ţćr upplýsingar eru skođađar kemur fram ađ bekkjarkerfi er viđ lýđi í 6 framhaldsskólum á landinu.
Um gögnin
Gagna um fjölda kennsludaga, prófadaga og ađra vinnudaga kennara var aflađ frá 34 framhaldsskólum. Tveir skólar, Menntaskólinn Hrađbraut og Snyrtiskólinn, starfa eftir ţriggja anna kerfi og eru ekki taldir međ í tölunum hér ađ ofan. Á síđastliđnu skólaári tók Tćkniskólinn – skóli atvinnulífsins til starfa, en hann varđ til viđ sameiningu Iđnskólans í Reykjavík og Fjöltćkniskóla Íslands.